Alvarlegar afleiðingar náttúru-hamfara, sérstaklega fyrir fátæka
"Ofviðri, flóð og þurrkar hafa bæði
skelfilegar afleiðingar fyrir fólk og efnahag og fátækir verða oftast
verst úti," segir Jim Young Kim forseti Alþjóðabankans í tilefni af
útgáfu nýrrar skýrslu um áhrif náttúruhamfara á efnahag og lífsafkomu
fólks.
Í skýrslunni -
Unbreakable: Building Resilience of the Poor in the Face of Natural Disasters
- kemur fram að efnahagstjón af völdum alvarlegra náttúruhamfara er
metið á 520 milljarða bandaríkjadala árlega. Þá leiða hamfarirnar til
þess að 26 milljónir manna bætast í hóp fátækra ár hvert.
Eins og nafn skýrslunnar gefur til kynna
leggur Alþjóðabankinn höfuðáherslu á að auka viðnámsþrótt gegn hamförum
og Jim Young Kim segir það ekki aðeins efnahagslega skynsamlegt heldur
líka siðferðilega mikilvægt. "Alvarlegar náttúruhamfarir vegna
loftslagsbreytinga gætu svipt burt framförum síðustu áratuga í
baráttunni gegn fátækt," segir hann.
Disaster resilience measures could unlock US$100 billion in developing economies, World Bank says