25 milljónir til Neyðarsjóðs SÞ vegna Haítí og Sýrlands
10 ára afmæli CERF Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að
veita 25 milljónum króna til Neyðarsjóðs Sameinuðu þjóðanna, m.a. vegna
hamfaranna á Haítí og afleiðinga átakanna í Sýrlandi. Fyrr á árinu
veittu íslensk stjórnvöld 10 milljón króna framlag til neyðarsjóðsins.
Með þessu framlagi leggja íslensk stjórnvöld sitt af mörkum til að mæta
mikilli og sívaxandi þörf fyrir mannúðaraðstoð en mjög er lagt að ríkjum
heims að hækka framlög til Neyðarsjóðsins.
Tilgangur Neyðarsjóðs SÞ er að
tryggja að neyðar- og mannúðaraðstoð berist fórnarlömbum náttúruhamfara
og átaka tímanlega og á sem skilvirkastan hátt. Í kjölfar afleiðinga
fellibylsins Matthew sem gekk yfir Haítí fyrr í mánuðinum, hefur
sjóðurinn þegar veitt fimm milljónum Bandaríkjadala til mannúðaraðstoðar
og 8 milljón dala lán til
Barnahjálpar SÞ til að berjast gegn kólerufaraldri í landinu. Samkvæmt
sameiginlegu mati stofnana Sameinuðu þjóðanna á Haítí er þörf á allt að
119 milljónum dala í mannúðaraðstoð fyrir 750 þúsund manns næstu þrjá
mánuðina. Þá hefur Neyðarsjóður SÞ veitt há framlög til mannúðaraðstoðar
vegna átakanna í Sýrlandi og til neyðaraðstoðar í Chad,
Mið-Afríkulýðveldinu og Jemen.
Þeim sem þarfnast mannúðar- og
neyðaraðstoðar hefur fjölgað mjög á síðustu árum og gert er ráð fyrir að
sú tala muni halda áfram að hækka. Fórnarlömb vopnaðra átaka og hamfara
eru fleiri en nokkru sinni. Í lok september sl. hafði neyðarsjóðurinn
veitt 360 milljónum dala í mannúðaraðstoð í 43 löndum þar sem ástandið
var talið alvarlegast. Í septembermánuði einum var 69 milljónum dollara
veitt til aðstoðar í tíu löndum.