Wonder Woman í stað framkvæmdastjóra
"Sameinuðu þjóðirnar hafa nýlega hafnað
sjö kvenkyns frambjóðendum sem gáfu kost á sér í leiðtogahlutverk
samtakanna. Núna, í því skyni að efla konur og stúlkur, velja þau
teiknimyndapersónu sem lukkudýr: Wonder Woman. Já, teikniblaðapersónu."
Þannig hefst grein í New York Times en
Sameinuðu þjóðirnar hafa verið gagnrýndar fyrir að velja
ofurhetjuna Wonder Woman til að leiða herferð samtakanna um
valdeflingu kvenna og stúlkna. Gagnrýnendur segja valið
niðurlægjandi, að því er fram kemur í frétt á Mbl.is.
Þar segir að Ban Ki-moon,
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, muni á föstudag vera
viðstaddur athöfn þar sem Wonder Woman verður formlega útnefnd
heiðurssendifulltrúi valdeflingar kvenna og stúlkna.
"Valið var tilkynnt nokkrum dögum
eftir að Antonio Guterres, fyrrverandi forsætisráðherra
Portúgal, var útnefndur arftaki Ban. Sú útnefning olli ýmsum
kvennasamtökum vonbrigðum, þar sem vonast hafði verið til að fyrir
valinu yrði fyrsta konan til að sinna starfi framkvæmdastjóra,"
segir í fréttinni.
"Þetta er út í hött," segir Shazia Rafi,
einn leiðtoga She4SG herferðarinnar og fyrrverandi
framkvæmdastjóri Parliamentarians for Global Action.
"Táknmynd herferðarinnar fyrir
eflingu kvenna er teiknimyndapersóna, á meðan hægt var að velja á
milli margra raunverulegra kvenna."
Rafi, sem hefur ritað Ban bréf og hvatt
hann til að sniðganga athöfnina, krefst þess að fallið verði frá
ákvörðuninni.
Wonder Woman í stað framkvæmdastjóra/ Mbl.is
Superdama i hotpants skal fronte kvinners rettigheter/ Bistandsaktuelt U.N. Picks Powerful Feminist (Wonder Woman) for Visible Job (Mascot) UN under fire for picking Wonder Woman to lead campaign/ AFP Wonder Woman named UN girls' empowerment ambassador/ TheGuardian