Vaxandi loftmengun í Afríku mikið áhyggjuefni
Loftmengun í Afríku eykst jafnt og þétt og leiðir til
heilsutjóns og efnahagslegs tjóns í síauknum mæli, segir í nýrri skýrslu
Þróunarseturs OECD sem heitir einfaldlega:
Cost of Air Pollution in Africa. Í frétt um útgáfu
skýrslunnar segir að kostnaðurinn við loftmengun sé þegar orðinn hærri
en kostnaður vegna óviðunandi salernisaðstöðu og vannærðra barna. "Án
róttækra stefnubreytinga um þéttbýlismyndun í Afríku gæti þessi
kostnaður orðið himinhár," segir í fréttinni.
Í skýrslunni kemur fram að á
árabilinu frá 1990 til 2013 hafi dauðsföllum af völdum loftmengunar
utanhúss fjölgað um 36% og farið í 250 þúsund. Á sama tíma hafi
loftmengun innanhúss - vegna mengandi orkugjafa við eldun - aukist um
18% og dauðsföllin farið í 450 þúsund.
"Áætlaður fjárhagslegur kostnaður fyrir Afríku í heild vegna þessara
ótímabæru dauðsfalla er um 215 milljarðar bandaríkjadala fyrir
loftmengun utanhúss og 232 milljarðar bandaríkjadala fyrir mengun á
heimilum. Og þetta gerist þrátt fyrir að iðnvæðingin sé hægfara og fari
jafnvel í öfuga átt í mörgum löndum," segir í skýrslunni.
The increased cost of air pollution in Africa calls for urgent mitigation action, says new OECD Development Centre study/ OECD