Söguleg samþykkt um hert öryggi í efnahagslögsögu Afríkuríkja
Afríkusambandið hefur samþykkt að auka öryggi og eftirlit í
efnahagslögsögu álfunnar í baráttunni við útbreidda
sjóræningjastarfsemi og ólöglegar fiskveiðar sem hafa kostað
sjávarútveginn og efnahag þjóðanna tugmilljarða króna á undanförnum
áratugum. Rúmlega fjörutíu þjóðir Afríku samþykktu bindandi samkomulag
þessa efnis á fundi síðastliðinn laugardag en samningurinn er sagður
sögulegur.
Óvenjumargir þjóðarleiðtogar, átján talsins,
hittust á fundi í Lome, Tógó, um þetta brýna hagsmunamál álfunnar og
fréttaskýrendur segja það til marks um mikilvægi málsins, að því er fram
kemur í frétt
DW.
Erfiðlega hefur gengið að setja bönd á sjóræningjastarfsemi, ólöglegar
veiðar, smygl og aðrir glæpi á sjó en 90% af inn- og útflutningi
Afríkuþjóða fer sjóleiðina og því er siglingavernd afar mikilvæg
efnahagslegri velgengni í álfunni. Af 54 aðildarríkjum Afríkusambandsins
eiga 38 þjóðir landamæri að sjó.
Að minnsta kosti fimmtán ríki þurfa að
fullgilda samninginn áður en hann kemst til framkvæmda. Samkvæmt
samningnum þurfa ríki að greiða inn í sérstakan sjóð sem settur verður á
laggirnar til að auka öryggi á hafi úti.