Setur auðmýkt, samkennd og valdeflingu kvenna í öndvegi
Viðtal við Guterres á CNN Eins og áður hefur verið sagt frá
tekur Antonio Guterres fyrrverandi forsætisráðherra Portúgals við af Ban
Ki-Moon sem aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna frá og með byrjun
næsta árs. Guterres verður níundi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna
frá upphafi.
Í nýju fréttabréfi Sameinuðu þjóðanna er farið
yfir ferlið um val á framkvæmdastjóra og þar segir: "Val á
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna fer þannig fram að Öryggisráðið
mælir með frambjóðanda við Allsherjarþingið sem staðfestir valið með
kosningu. Ekki er hefð fyrir því að Allsherjarþingið kjósi gegn meðmælum
Öryggisráðsins. Þetta fyrirkomulag þýðir að fastaríkin fimm,
Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kína og Rússland, sem sitja í
Öryggisráðinu hafa neitunarvald við val á framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna. Í gegnum tíðina hefur valið farið fram fyrir luktum dyrum og
mikil leynd ríkt yfir því. Þetta er í fyrsta sinn sem að valið fer fram
fyrir opnum dyrum og var öllum ríkjum boðið að tilnefna frambjóðanda.
Allsherjarþingið hélt opna fundi í apríl með öllum frambjóðendum þar sem
þeim gafst færi á að kynna sýn sína á starfið og aðildarríkjum gafst
tækifæri til að spyrja þá spurninga.
Þrýstingur frá Austur-Evrópu
Það var mikill þrýstingur frá
Austur-Evrópu blokkinni að næsti framkvæmdastjóri kæmi þaðan. Flestir
framkvæmdastjórar hafa komið frá Vestur-Evrópu og er Austur-Evrópa eina
svæðið sem ekki hefur átt framkvæmdastjóra. Það var einnig mikil pressa á
að kona yrði fyrir valinu þar sem að engin kona hefur áður gegnt
starfinu. Hvorugt varð þó raunin að þessu sinni og hafði Antonio
Guterres betur í öllum sex óformlegu kosningunum í Öryggisráðinu. Þau
ríki sem sitja í ráðinu mæla með, mæla gegn eða lýsa engri skoðun á
frambjóðendum í þessum óformlegu kosningum og ekki er mælt með
frambjóðanda fyrr en að ekkert ríki mælir gegn framboðinu. Því var náð
þann 5. október og hlaut Guterres 13 meðmæli og 2 ríki lýstu engri
skoðun.
Flóttamannafulltrúi
Antonio Guterres er fæddur 30. apríl 1949 í
Lissabon, Portúgal. Hann útskrifaðist með gráðu frá Instituto Superior
Técnico tækniskólanum í Lissabon árið 1971 og hóf feril sinn í opinberum
störfum árið 1973. Hann gekk í flokk jafnaðarmanna og gegndi ýmsum
stöðum innan flokksins, þar á meðal oddvitastöðu. Árið 1991 stofnaði
Guterres flóttamannaráð Portúgals. Hann gegndi stöðu forsætisráðherra
Portúgals frá 1995-2002 og var flóttamannafulltrúi Sameinuðu þjóðanna
frá árinu 2005-2015. Talið er að reynsla hans sem flóttamannafulltrúi
Sameinuðu þjóðanna sé ein helsta ástæða þess að hann hafi nú verið
kjörinn sem framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, enda hafi flóttamenn
aldrei verið jafn margir á heimsvísu og er það eitt aðalmál Sameinuðu
þjóðanna um þessar mundir. Guterres hefur lýst því yfir að eitt af hans
megin stefnumálum sé að setja tímasetta aðgerðaráætlun til að jafna
hlutfall kynjanna í æðstu stöðum Sameinuðu þjóðanna og verður spennandi
að fylgjast með og þrýsta á að svo verði."
Fréttabréf Sameinuðu þjóðanna
Guterres: "Sigurvegarinn er trúverðugleiki SÞ"
New U.N. leader sets goals: Humility, empathy, empowering women