Samstarf Alþjóðabankans og Íslands á sviði jarðhita
Á hinn bóginn eru tveir megin ókostir við
jarðhitann sem hafa mjög hægt á nýtingu þessarar ágætu auðlindar. Í
fyrsta lagi er hann ekki alls staðar að finna og í öðru lagi þarf miklar
og áhættusamar fjárfestingar í jarðhitaleit og tilraunaborunum til að
staðfesta að nýtanlegur jarðhiti sé til staðar og í hvað miklu magni og
enn frekari fjárfestingar áður en hægt er að virkja. Hár
fjárfestingakostnaður í upphafi með mikilli áhættu hefur orðið til þess
að einkaaðilar og stjórnvöld í fátækum ríkjum hafa ekki bolmagn til að
leggja út í virkjun jarðhita þrátt fyrir von um umtalsverðan ábata ef
vel tekst til og nýtanleg auðlind reynist vera fyrir hendi. Við þessar
aðstæður er gott tækifæri fyrir alþjóðlega þróunarbanka, eins og
Alþjóðabankann, að koma að málum og aðstoða lönd við að rannsaka og nýta
sínar jarðhitaauðlindir.
Rúmir fjórir milljarðar dala til jarðhitaverkefna í þróunarríkjum
Alþjóðabankinn hefur tekið þátt í fjármögnun
jarðhitaverkefna í þróunarlöndum frá því á áttunda áratug síðustu aldar
þegar bankinn lánaði fé til byggingar á Olkaria I orkuverinu í Kenía.
Síðan þá hefur Alþjóðabankinn og aðrar sambærilegar stofnanir lánað sem
nemur rúmum fjórum milljörðum Bandaríkjadala til jarðhitaverkefna í
þróunarlöndum víða um heim og er hlutur Alþjóðabankans þar af rúmur
helmingur. Framan af lánaði bankinn fyrst og fremst til áhættuminni
þátta í uppbyggingu jarðhitavirkjana, þ.e. byggingu orkuveranna sjálfra
og gufuveitna en vék sér undan því að veita lánsfé til borana en
borkostnaður getur numið um 40% af heildarkostnaði við virkjun jarðhita
og því er aðgengi að fjármunum til borana ein af megin forsendum þess að
unnt sé að koma jarðhitavirkjunum á koppinn.
GGDP
Á síðustu árum hefur Alþjóðabankinn unnið að því
að vekja athygli á því innan þróunarsamfélagsins að takmarkað aðgengi
að fjármagni til borana, og þá einkum til rannsóknaborana, sé einn af
megin flöskuhálsunum sem tefja vöxt á nýtingu jarðhita til
rafmagnsframleiðslu í þróunarlöndum. Þetta hefur m.a. skilað sér í því
að árið 2015 var fé til rannsóknaborana 17% af því fé sem alþjóðlegir
þróunarbankar vörðu til jarðhita en árið 2012 var þetta hlutfall
einungis 6%. Á alþjóðlegri jarðhitaráðstefnu í Hörpu í mars 2013 hleypti
Alþjóðabankinn af stokkunum sérstöku átaksverkefni, the Global
Geothermal Development Plan (GGDP), til að afla fjár til
jarðhitaverkefna. GGDP verkefnið er rekið af ESMAP (Energy Sector
Management Assistance Program). Um 250 milljónir bandaríkjadala hafa nú
þegar fengist til þessa verkefnis frá CTF (Clean Technology Fund) og er
þessu fé ætlað að örva fjárfestingu einkaaðila í jarðhitavirkjunum en
gert er ráð fyrir að á móti þessu fé komi allt að 1,5 milljarðar dala
frá einkageiranum. Þess skal getið að fleiri alþjóðlegir þróunarbankar
svo sem Evrópski Þróunarbankinn (EBRD) og Ameríski Þróunarbankinn (IADB)
geta einnig ráðstafað því fé sem safnast innan GGDP.
Stuðningur Alþjóðabankans við jarðhitaverkefni í
einstökum löndum er sniðinn að aðstæðum í hverju landi. Í Tyrklandi þar
sem jarðhitageirinn hefur verið í miklum vexti á síðustu árum með
þátttöku fjölda innlendra fjárfesta kemur bankinn að því að fjármagna
lánalínur fyrir innlenda banka sem framlána til vinnsluborana og
byggingu orkuvera. Þar er einnig unnið að því að koma á fót sjóði, innan
ramma GGDP, sem hefur það hlutverk að tryggja hluta af þeim fjármunum
sem einkaaðilar leggja í rannsóknaboranir. Er þetta hugsað til að auka
enn frekar áhuga einkaaðila til að fjárfesta í virkjun jarðhita.
Alþjóðabankinn er einnig að undirbúa að setja á fót samskonar sjóð í
Indónesíu. Í löndum þar sem jarðhitageirinn er ekki eins langt á veg
kominn veitir Alþjóðabankinn fé til borana; í gegnum GGDP styrki eins og
t.d. í Djibouti og í Armeníu eða með lánum til langs tíma og á lágum
vöxtum, t.d. í Eþíópíu.
Ísland og Alþjóðabankinn
Ísland og Alþjóðabankinn hafa átt farsælt
samstarf í jarðhitamálum um nokkurt skeið. Íslensk stjórnvöld hafa sem
hluthafar í Alþjóðbankanum og aðilar að ESMAP beitt sér fyrir því að
bankinn geri stuðning við jarðhitanýtingu að forgangsverkefni. Þannig
studdu íslensk stjórnvöld undirbúning GGDP dyggilega. Alþjóðabankinn og
Ísland gerðu einnig með sér samkomulag um samstarf í jarðhitamálum í
Austur Afríku árið 2012. Það samstarf felst í því að Ísland fjármagnar
yfirborðsrannsóknir í samstarfi við Norræna Þróunarsjóðinn en
Alþjóðbankinn fylgir í kjölfarið og fjármagnar rannsóknaboranir. Þetta
samstarf hefur heppnast sérlega vel í Eþíópíu þar sem undirbúningur að
tilraunaborunum stendur nú yfir.
Íslensk stjórnvöld hafa ennfremur kostað stöðu
jarðhitasérfræðings innan ESMAP síðan 2009. Íslenskir sérfræðingar innan
ESMAP hafa stutt við starf verkefnisteyma sem vinna að
jarðhitaverkefnum innan bankans og skrifað fagrit um jarðhitamál sem
nýtast í starfi bankans svo sem handbók um skipulag og fjármögnun
jarðhitaverkefna og nýlega skýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda frá
jarðhitavirkjunum. Annar þessara sérfræðinga átti einnig drjúgan þátt í
þeirri hugarfarsbreytingu varðandi stuðning bankans við boranir sem
getið er að framan og mótun GGDP. Íslenska utanríkisráðuneytið og ESMAP
vinna nú að mótun frekara samstarfs á sviði jarðhita á næstu árum.