Alþjóðlegi matvæladagurinn: Loftslagsbreytingar
Kynningarmyndband frá FAO. Bregðast
verður við loftslagsbreytingum, hungri og fátækt heildstætt til þess að
ná Heimsmarkmiðum alþjóðasamfélagsins, segir í skilaboðum Matvæla- og
Landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) á Alþjóða matvæladeginum
síðastliðinn sunnudag, 16. október.
José Graziano forstjóri FAO segir að hlýnun jarðar og óstöðugleiki í
veðurfari sé nú þegar farin að grafa undan því mikilvægasta í landbúnaði
og fæðuöryggi, þ.e. jarðvegi, skógum og úthöfum. "Eins og ævinlega eru
það þeir fátæku og svöngu sem líða mest og þorri þeirra eru smábændur í
dreifbýli þróunarríkjanna," segir Graziano í frétt frá FAO.
Bent er á að þurrkar og flóð séu tíðari og
öfgafyllri en áður og vísað til áhrifa El Nino á svæðum í Afríku, Asíu
og Mið-Ameríku, m.a. nýlegt ofsaveður af völdum fellibylsins Matthíasar á
Haítí.
Yfirskrift dagsins er: Loftslagsbreytingar.
Nánar