Afríkuþjóðir samþykkja aðgerðir til að berjast gegn ofbeldi í garð barna
https://vimeo.com/174196634 Ofbeldi gegn börnum er enn útbreitt
í Afríkuríkjum þrátt fyrir áralangar tilraunir til þess að uppræta það.
"Mörg börn verða enn fyrir ofbeldi, þar með töldu banvænu ofbeldi, á
heimilum, í skólum og einnig í samfélögunum þar sem þau búa og á
vinnustöðum," segir í
yfirlýsingu
fundar sem haldinn var í Addis Ababa í Eþíópíu nýlega.
Á þeim fundi voru ræddar leiðir til að herða baráttuna gegn ofbeldi í
garð barna. Alls tóku þátt í fundinum 106 fulltrúar frá 32 löndum
Afríku, fulltrúar ríkisstjórna, svæðasamtaka og borgarasamtaka sem láta
sig málið varða. Fundurinn bar yfirskriftina -
Committing Africa for Action for Ending Violence against Children.
Í yfirlýsingu fundarins segir að ýmsir þættir stuðli að því
ófremdarástandi sem ríki í þessum málum þar á meðal ófullnægjandi
framkvæmd við stefnumörkun í málaflokknum, takmarkað fjármagn og
takmarkaður mannauður, áhersla á skyndiviðbrögð fremur en forvarnir og
skortur á því að ráðast að rót vandans, svo dæmi séu tekin.
Fundurinn samþykkti samhljóða að setja á
laggirnar samstarfsvettvang "African Partnership to End Violence against
Children" sem hefði það hlutverk að binda enda á ofbeldi gegn börnum í
álfunni. Helstu áhersluþættir í aðgerðaráætlun og rekstarfyrirkomulagið
voru einnig rædd svo og ákvæði í undirmarkmiðum Heimsmarkmiðanna (16.2)
og þróunarmarkmiðum Afríkusambandsins, Agenda 2063, sem tengjast ofbeldi
gegn börnum.
Vefsíða alþjóðasamtakanna End Violence Against Children - The Global Partnership
UNICEF to work with journalists to tackle violence against children/ ArabSpringNews
UK steps up support to end modern slavery and child exploitation globally/ Breska ríkisstjórnin