Á annað hundrað stelpur sagðar neita að yfirgefa Boko Haram
Frétt BBC Samningamenn nígerískra stjórnvalda
sem ræða við hryðjuverkasamtökin Boko Haram um frelsun stúlknanna sem
samtökin rændu fyrir tveimur og hálfu ári segja að viðræður standi yfir
um frelsun 83 stúlkna til viðbótar en að rúmlega eitt hundrað stúlkur
séu ófúsar að yfirgefa öfgasamtökin.
Talið er líklegt að skýringin felist í því að
stúlkurnar hafi gerst málsvarar samtakanna eða skammist sín of mikið til
að snúa heim eftir að hafa neyðst til að giftast meðlimum samtakanna
eða eignast með þeim börn. Í frétt AP fréttastofunnar segir að stúkurnar
sem voru leystar úr haldi samtakanna í síðustu viku komi til með að
menntast erlendis því þær myndu að líkindum verða fyrir fordómum í
heimalandinu. Þeim stúlkum, 21 að tölu, var sleppt lausum í framhaldi af
samningaviðræðum stjórnvalda við fulltrúa Boko Haram.
Alls var 276 stelpum rænt frá Chibok í apríl
2014. Nokkrar náðu að flýja strax en langflestar hafa verið í haldi
mannræningjanna allar götur síðan. Hermt er að sex stúlkur eða fleiri
hafi látist í vistinni hjá Boko Haram.
Chibok leader: Over 100 girls unwilling to leave Boko Haram/ AP
Boko Haram frees 21 schoolgirls from group abducted in Chibok/ TheGaurdian
Boko Haram has released 21 kidnapped Chibok girls-a sign they might all be coming home/ Qz
Fleiri stúlkur frelsaðar fljótlega/ RUV
Chibok girls give much-needed boost to Buhari's leadership/ DW
Chibok girls: Freed students reunite with families in Nigeria/ BBC