Dönskum fyrirtækjum boðin þátttaka í alþjóðlegri þróunarsamvinnu
Danska ríkisstjórnin hefur sett á laggirnar nýjan sjóð með sjö milljóna króna framlagi (123 milljónir ísl. kr.) sem hefur það markmið að auka þátttöku danskra fyrirtækja í alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Hugmyndin er að styðja samstarf danskra fyrirtækja við stofnanir í þróunarríkjum.
Haft er eftir Kristian Jensen utanríkisráðherra í
frétt
dönsku ríkisstjórnarinnar að án einkageirans verði ekki unnt að ná
Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Með úthlutun sjö milljóna í sérstakan
sjóð sé ríkisstjórnin að bjóða dönskum fyrirtækjum að taka þátt í vinnu
við að skapa betri umgjörð á ýmsum sviðum í þróunarríkjum, svo sem í
umhverfismálum, mannréttindum, lífskjörum og fleiru. "Þetta er bæði í
þágu þjóðanna sjálfra og dönsku fyrirtækjanna í samkeppni á
hlutaðeigandi mörkuðum," segir ráðherrann.
Að mati danska utanríkisráðherrans eru einkaaðilar, þar á meðal bæði alþjóðleg og dönsk fyrirtæki, fjárfestar, góðgerðarsjóðir auðmanna, samtök atvinnurekenda og launþega, sífellt að auka hlutdeild sína í alþjóðlegri þróunarsamvinnu. "Einkageirinn stendur að baki um það bil 90% allra starfa í þróunarríkjum og hann er þar með mikilvægur í baráttunni gegn fátækt," segir Kristian Jensen.