Ban Ki-moon á kynningarfundi um Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
Ban Ki-moon aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna kynnti sér starfsemi Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi á
sérstökum kynningarfundi í Þjóðminjasafninu á laugardag.
Á fundinum kynnti Hafdís Hanna Ægisdóttir
forstöðumaður Landgræðsluskólans skólana fjóra sem starfa hér á landi,
en þeir eru Jarðhitaskólinn, Sjávarútvegsskólinn, Landgræðsluskólinn og
Jafnréttisskólinn. Nemendur frá skólunum fjórum höfðu stutta framsögu um
nám sitt, tveir sem eru hér á landi og tveir gegnum myndbönd sem tekin
voru í heimalöndum þeirra.
Eftir kynninguna skoðaði Ban Ki-moon og eiginkona hans, Ban Soon Taek, Þjóðminjasafnið í fylgd Margrétar Hallgrímsdóttur þjóðminjavarðar.