UNICEF vekur athygli á neyð í Nígeríu
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) segir að
hungursneyð í norðausturhluta Nígeríu þar sem vígasveitir Boko Haram
hafa ráðið ríkjum gæti orðið 75 þúsund börnum að aldurtila verði þeim
ekki veitt aðstoð.
Í
frétt
Reuters kemur fram að um 15 þúsund einstaklingar hafi verið myrtir og 2
milljónir manna neyðst til að fara á vergang á þeim sjö árum sem
íslömsku öfgasamtökin hafa vaðið uppi. Þar segir að Sameinuðu þjóðirnar
hafi óskað eftir vernd hersins fyrir starfsmenn hjálparsamtaka til að
komast inn í þau fylki þar sem ástandið er verst, Borno, Yobe og Admawa.
Einnig er nefnt að matvælaverð hafi hækkað vegna uppskerubrests.
Samtökin telja að allt að 400 þúsund börn yngri
en fimm ára geti liðið fyrir alvarlega vannæringu í fyrrnefndum
fylkjum. Þá hafa samtökin óskað eftir meiri fjárhagsstuðningi því þau
hafa aðeins fengið brot af því fé sem þarf til að forða börnunum frá því
að vera hungurmorða.