Rúmlega sex af hverjum tíu íbúum borga í Afríku búa í fátækrahverfum
Á næstu áratugum verða nokkrar borgir í Afríku meðal þeirra
þéttbýlisstaða sem stækka mest. Að mati Greg Fosters aðstoðarforstjóra
samtakanna Habitat for Humanity blasir við að óbreyttu að milljónir
manna flæði inn til borga og bætist við íbúafjöldann sem fyrir er í
óskipulögðum yfirfullum fátækrahverfum. Síðar í mánuðinum verða þessi
mál í brennidepli þegar Sameinuðu þjóðirnar efna til leiðtogafundar um
húsnæðismál og sjálfbæra þróun í borgum sem kallast Habitat III - United
Nations Conference on Housing and Sustainable Urban Development.
Slíkar ráðstefnur hafa verið haldnar á
tuttugu ára fresti, sú fyrsta 1976. Þriðja ráðstefnan er boðuð í Quito,
Ekvakdor, dana 17.-20. október og þar verður einkum rætt
stefnumörkunarskjal um þróun borga, svokölluð New Urban Agenda.
Greg Fosters segir í grein sem birtist á vef OECD að markmiðin fyrir
leiðtogafundinn Habitat III hljómi skynsamlega: að þróa vel skipulagðar
og sjálfbærar borgir, uppræta fátækt og skapa atvinnu fyrir alla ásamt
því að virða mannréttindi. Hann segir að í ört vaxandi borgarsamfélögum
gegni þéttbýlisstaðir lykilhlutverki í sjálfbærri þróun. Á fundinum í
Ekvador verði leitast við að sammælast um pólítískar skuldbindingar um
þá sýn og niðurstaða fundarins geti skipt miklu máli fyrir þróun borga í
Afríku.
Fram kemur í greininni að 62% íbúa í
borgum Afríku búi í fátækrahverfum eða óskipulögðum hverfum og eigi
vart til hnífs og skeiðar. Efnahagslega hafi álfan dregist aftur úr,
einkum hvað iðnað áhrærir, og langt hagvaxtarskeið með háum
prósentutölum sé liðið sem sjáist best á því að á síðasta ári hafi
hagvöxtur verið kominn niður í 3,4%. Það endurspegli lægra vöruverð,
alþjóðlegan samdrátt og óvissu í fjármálakerfinu. Mikill skortur sé á
fjárfestingu í innviðum stórborga, atvinnuleysi mikið og stefna í
húsnæðismálum víða í ólestri. Sama gildi um borgarskipulag sem að mati
Fosters er forsenda þess að íbúar hafi rafmagn, hreint vatn- og
salernisaðstöðu og viðunandi samgöngur. Slík skipulagsáætlun væri aukin
heldur atvinnuskapandi og hvatning fyrir einkafyrirtæki að ógleymdum
auknum lífsgæðum fyrir íbúana, færri veikindadögum, lægri lyfjakostnaði
og hærri ráðstöfunartekna. Bættar og skilvirkar samgöngur myndu einnig
leiða af sér tímasparnað og minni loftmengun sem víða er banvæn í
stórborgum þróunaríkja.
Habitat III decisions crucial for the future of Africa´s cities / OECD
New Urban Agenda/ SÞ
Fullnægjandi húsnæði er mannréttindi/ UNRIC
Humanity on the move: Unlocking the transformative power of cities/ WBGU