Ný herðferð WHO gegn banvænustu sjúkdómunum: hjarta- og æðasjúkdómum
https://youtu.be/hzSAUnUxCh4 "Global Hearts" er heitið á herferð sem hleypt var af
stokkunum af hálfu Alþjóðaheilbrigðis-stofnunarinnar (WHO) og
samstarfsaðila á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á dögunum. Markmiðið
er að freista þess að draga úr hjarta- og æðasjúkdómum sem eru
banvænustu sjúkdómar í veröldinni.
Alls deyja 17 milljónir einstaklinga
árlega úr hjarta- og æðasjúkdómum, margir vegna óheilsusamlegra
lífshátta eins og reykinga, hreyfingarleysis eða vegna þess að saltmikil
matur er borðaður í óhófi. WHO segir í frétt um herferðina að mörgum
mætti líka bjarga ef þeir hefðu betri aðgang að heilsugæslu til að fá
blóðþrýsting mældan. Of hár blóðþrýstingur, hátt kólestról í blóði og
fleiri þættir auka hættur á hjartasjúkdómum og heilablóðfalli.
Herferðin er hluti af átaki WHO til að
auka forvarnir og fækka hjarta- og æðasjúkdómum, einkum í þróunarríkjum.
New initiative launched to tackle cardiovascular disease, the world's number one killer/ WHO
Bæklingur um átakið/ WHO