Mótorhjólataxar í Kampala
Fólksfjölgun í Úganda hefur verið
gríðarleg síðustu ár, þá sérstaklega í höfuðborginni Kampala. Árið 2010
voru Úgandamenn 32,608 milljónir talsins en nú, sex árum síðar, telja
landsmenn rétt tæplega 40 milljónir. Samgöngur hafa ekki þróast í takt
við þessa miklu og hröðu fólksfjölgun og er ein afleiðing þess tíðar
umferðarteppur í höfuðborginni sem geta valdið því að fólk situr fast í
bílum sínum tímunum saman.
Boda Boda
Vegna þessara miklu umferðarteppa njóta móturhjólataxar, kallaðir Boda Boda,
sífellt aukinna vinsælda og eru nú orðin ein helsta samgönguleið
borgarbúa. Í Úganda eru nú skráð um 200 þúsund Boda Boda ökutæki og
líklegt að ökumennirnir séu öllu fleiri. Meðal ungra karlmanna er
starfið eitt það eftirsóttasta því þó vissulega séu bílstjórarnir
margir, eru farþegarnir líka alltof margir og því þekkist það varla að
bílstjóri fari auralaus heim í lok dags.
Boda Boda eru þeim kostum gæddir að þeir komast hratt á milli staða,
þrátt fyrir umferðarteppur, og þeir eru ódýr ferðamáti. Það er oft
ótrúlegt að fylgjast með þeim smeygja sér á milli bíla þar sem bilið á
milli er svo þröngt að maður heldur niðri í sér andanum og bíður eftir
að þeir keyri niður bílspegil, sem þeir yfirleitt gera ekki. Að nota
Boda Boda er því einkar hentugt í Kampala, en það getur líka verið sem
rússnesk rúlletta. Samkvæmt rannsókn sem framkvæmd var af Makarere
Háskólanum á Mulagi sjúkrahúsinu í Kampala er helsta ástæða þess að fólk
sæki bráðamóttökuna þar ekki malaría eða aðrir sjúkdómar, heldur Boda
Boda umferðarslys. Um 40% allra alvarlegra tilfella sem koma á tiltekið
sjúkrahús eru vegna Boda Boda slysa og látast árlega þúsundir
Úgandamanna í slíkum slysum eða hljóta alvarlega höfuðáverka og jafnvel
aflimun.
World Health Organization (WHO) segir að
árið 2030 verði umferðarslys líklegri dánarorsök í lágtekjulöndum
heimsins heldur en HIV/alnæmi. Segja þeir jafnframt að notkun hjálms
þegar á tveggja hjóla ökutæki í umferðinni geti minnkað líkurnar á dauða
eða alvarlegum höfuðmeiðslum um 40% fyrir farþega og 70% fyrir ökumenn.
Í Úganda eru lög sem segja að bæði farþegum og ökumönnum beri skylda
til að nota hjálm þegar ferðast er um á móturhjóli. Þeim lögum er þó í
fæstum tilfellum fylgt eftir og segir tölfræðin að í Kampala noti innan
við 1% farþega og innan við 30% ökumanna hjálm. Það var þess vegna sem
hugmyndin um Safe Boda kviknaði.
Snjallsímaappið Safe Boda
Safe
Boda var stofnað í árslok 2014 og markmiðið er að bjóða upp á Boda Boda
sem öruggan ferðamáta. Safe Boda er snjallsíma-app, en með því er reynt
að höfða til yngri kynslóðar landsins. Úganda er ein yngsta þjóð í
heimi - um 24% þjóðarinnar eru á aldrinum 10-19 ára og notast ungmenni
borgarinnar mörg við snjallsíma. Með Safe Boda snjallsíma-appinu er
pantaður Boda Boda ökumaður sem sækir þig hvert sem þú vilt, íklæddur
appelsínugulu vesti merktu fyrirtækinu. Ökumennirnir nota alltaf hjálm
og hafa meðferðis auka hjálm fyrir farþegana - þeir bjóða meira að segja
upp á einnota hárnet fyrir þá allra pjöttuðustu sem vilja ekki setja
upp notaða hjálma. Ökumennirnir hljóta allir þjálfun í umferðaröryggi og
-reglum, ásamt kennslu á viðhaldi á hjóli. Þetta er gert í samstarfi
við Rauða Kross Úganda og er svo fylgt eftir af yfirmönnum Safe Boda.
Appið nýtur nú mikilla vinsælda í höfuðborginni og samkvæmt vefsíðu Safe Boda voru ökumenn þess orðnir rúmlega 1000 talsins í lok ágústmánaðar og fer þeim stöðugt fjölgandi vegna mikillar eftirspurnar. Appelsínuguluklæddu ökumennirnir sem þeytast um götur borgarinnar virðast því vekja verðskuldaða athygli og verður það vonandi til þess að Safe Boda takist markmið sitt - að fækka umferðarslysum og bjarga lífum.
Ljósmynd frá Kampala: Egill Bjarnason.
'Uber for motorbikes' - the smart way to get around in a bustling capital/ CNN
Safe Boda
Motorcycles set to become main mode of transport in Africa/ EastAfrican
Tölfræðigögn um Úganda/ Alþjóðabankinn