Landsfundur Framsóknar leggur áherslu á mannréttinda- og jafnréttismál í þróunarsamvinnu
"Mannréttinda- og jafnréttismál skipi áfram
veglegan sess í utanríkisstefnu Íslands á vettvangi alþjóðastofnana og
samskiptum Íslands við önnur ríki og ríkjasambönd. Því er mikilvægt að
Ísland sýni gott fordæmi í þessum málarflokki á heimsvísu og beiti sér
gegn mannréttindabrotum," segir í ályktun um utanríkismál frá landsfundi
Framsóknarflokksins sem haldinn var um síðustu helgi.
Þar segir ennfremur að Ísland eigi að tala máli
hinsegin fólks á alþjóðavettvangi og að Ísland eigi að vera virkt í
samtali þjóða um framtíð heimsins. "Ísland ætti að stefna að því innan
þróunarsamvinnu að miðla sem mest þeirri einstöku þekkingu sem byggð
hefur verið upp innanlands á vettvangi Háskóla sameinuðu þjóðanna, í
sjálfbærum sjávarútvegi, jarðhita, jafnrétti og landgræðslu. Unnið skal
áfram að uppbyggingu í tvíhliða þróunarsamvinnu með fátækustu ríkjum
heims. Ísland skal áfram beita sér í bættu aðgengi fátækra ríkja að
alþjóðaviðskiptum og afnámi hindrana. Unnið verði að því að framlög
Íslands til þróunarsamvinnu endurspegli markmið Sameinuðu þjóðanna,"
segir í ályktun fundarins.
Að lokum segir í ályktuninni að
valdefling kvenna sé mikilvægt efnahagslegt baráttumál fyrir þjóðir
heims. Sýnt hafi verið fram á aukinn efnahagslegan ávinning fyrir ríki
heims með virkri þátttöku kvenna á öllum sviðum samfélagsins. "Mikilvægt
er að Ísland beiti sér áfram fyrir þróunarsamvinnuverkefnum sem stuðla
að jafnrétti kynjanna."
Nánar