Ekki dóttir mín
Ndyandin Dawara frá Gambíu tók nýlega þá örlagaríku ákvörðun að láta dóttur sína ekki ganga í gegnum það sama og hún sjálf þurfti að þola þegar hún var lítil stelpa, limlestingu á kynfærum sínum, segir í grein á vef UN Women á Íslandi. Þar segir ennfremur:
"Ég sat námskeið sem styrkt er af UN Women
þegar það rann upp fyrir mér hve afleiðingar þessa skaðlega siðar eru
hræðilegar. Í fyrstu vissum við ekki hvernig við áttum að ræða um þetta,
því að limlesting á kynfærum er mikið feimnismál hér í Gambíu. Sem
betur fer er búið að rjúfa þögnina og fyrsta skrefið er að breyta
hugarfari fólks. Ég og maðurinn minn erum hjartanlega sammála um að
dóttir okkur eigi ekki upplifa það sama og ég. Nú vinnur hann að því að
uppræta þennan skaðlega sið með því að fræða karlmenn og stráka um
alvarlegar afleiðingar hans," segir Ndyandin bjartsýn.
Ndyandin Dawara er í hópi 75% kvenna í Gambíu sem þurft hafa að þola
limlestingu á kynfærum sínum. Heilar kynslóðir kvenna hafa lifað nánast
allt sitt líf við sársauka vegna þessa skaðlega siðar, hafa ekki haft
völd yfir eigin líkama og skort kynlífslöngun. Þar að auki búa konur við
aukna hættu á hvers kyns heilsufarsvandamálum og jafnvel lífshættu. UN
Women styrkir námskeiðið sem Ndyandin sótti og er hluti af baráttunni
gegn limlestingum á kynfærum kvenna í Gambíu. Aukin fræðsla og umfjöllun
um þennan skaðlega sið hefur orðið til þess að bann við limlestingu á
kynfærum kvenna var fært í lög í desember 2015. Sú lagabreyting markar
tímamót í baráttunni fyrir auknu kynjajafnrétti í Gambíu.
Undanfarið ár hafa þrjú hundruð konur
setið námskeið UN Women og 64% þeirra mæðra sem sóttu námskeiðið sögðust
ekki vilja láta dætur sínar ganga í gegnum það sama og þær þurftu að
þola.
"Við þurfum að byrja á því að breyta hugarfari fólks," segir Ndyandin, þolandi limlestingar.
Til að gera líf kvenna eins og Ndyandin og
dóttur hennar betra er hægt að gerast mánaðarlegur styrktaraðili UN
Women á Íslandi.
Greinin á
vef UN Women