Ásókn í fílabein veldur mikilli fækkun fíla í Afríku
https://youtu.be/STwlCeyR0FE Ólögleg viðskipti með fílabein hafa
aukist á síðustu árum og leitt til þess að fílum hefur fækkað verulega í
Afríku. Viðskiptin hafa verið blómleg í Kína en stjórnvöld þar í landi
heita því að loka mörkuðum með fílabein. Alþjóðlegt bann með verslun
fílabeina hefur verið í gildi um langt árabil.
Þessar upplýsingar komu fram á ráðstefnu um
samninga sem tengjast alþjóðaviðskiptum með dýr og plöntur í
útrýmingarhættu en sautjánda ráðstefna um það efni var haldin á dögunum í
Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Á ráðstefnunni voru ræddar leiðir til
þess að sporna gegn slíkum viðskiptum og vernda tegundir í
útrýmingarhættu.
Upplýst var á ráðstefnunni að tölur um stærð fílastofnsins í
Afríkuríkjum bendi til þess að ásókn í fílabein hafi aukist og fílum
hafi fækkað á tíu árum úr 526 þúsundum árið 2006 niður í 415 þúsund á
þessu ári. Fækkunin er tilkomin að langmestu leyti vegna veiðiþjófa sem
sækja í fílabein. Verslun með fílabein hefur verið mikil í Asíulöndum,
einkum Kína, þar sem beinin eru eftirsótt verslunarvara og notuð í
útskurði og skrautmuni. Kínversk yfirvöld hafa hins vegar ákveðið að
grípa til aðgerða til að draga úr eftirspurninni, hefja lögsókn gegn
þeim sem taka þátt í ólöglegum viðskiptum og loka smásölumörkuðum.
Lamine Sebago sérfræðingur samtakanna World Wide Fund for Nature segir í
frétt
DW að veiðiþjófar hafi fellt allar fílahjarðir í löndum Vestur-Afríku
og útrýming bíði fíla í Miðafríkuríkjum nema því aðeins að stjórnvöld
þeirra ríkja herði sóknina gegn veiðiþjófum, gegn þeim sem höndla með
þennan varning og gegn þeirri spillingu sem viðheldur þessari
glæpastarfsemi.
Africa's Elephant Ivory: Sell or Destroy?
Wildlife Convention Aims to Save Great, Small, Weird and Ugly / VOA
Illegal trade accelerates wild plant extinctions, more transparency needed/ UNCTAD
Burning Down the Ivory Trade/ ForeignAffairs
New data shows 'staggering' extent of great ape trade/ BBC