Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 66/2024 Úrskurður 15. maí 2024

Mál nr. 66/2024                    Eiginnafn:     Hroði (kk.)

Hinn 15. maí 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 66/2024 en erindið barst nefndinni 3. maí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Hroði (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Hroða, brýtur ekki í bág við íslenskt málkerfi og er ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Hér reynir aftur á móti á skilyrði um að eiginnafns sé ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Samkvæmt Íslenskri orðsifjabók merkir nafnorðið hroði 1. Hrotti, rudd;, ruddaskapur; árvöxtur, brimsúgur, ruddaveður, óró, erjur, deila, vindsheiti 2. Uppgangur eða slím í lungum eða öðrum öndunarfærum 3. Rusl, úrgangur, óþverri. Orðið hefur því neikvæða og óvirðulega merkingu. Það hefur einnig mjög óvirðulega merkingu í skyldum orðum eins og hroðalegur, hroðamenni og hroðaverk.

Nafnið Hroði getur að mati mannanafnanefndar valdið nafnbera ama. Hafa ber í huga að samþykki mannanafnanefnd eiginnafn, færist það á mannanafnaskrá. Það kann að leiða til þess að börn geta hlotið það, en mikilvægir hagsmunir barna eru að þeim séu ekki gefin nöfn sem telja verður ósiðleg, niðrandi eða meiðandi sbr. greinargerð með frumvarpi til laga um mannanöfn.

Bent skal á að fullveðja einstaklingur sem hefur í hyggju að kjósa sér nafn af einhverjum ástæðum sem að öllu jöfnu kynni að valda barni sem nafnhafa ama, getur í daglegu lífi sínu viðhaft það nafn þótt það fái ekki opinbera skráningu hjá stjórnvöldum þótt það færist ekki á mannanafnaskrá. Mannanafnanefnd hlutast ekki til um gælunöfn, listræn nöfn eða önnur þau nöfn eða nefni sem kunna að tíðkast í daglegu lífi utan opinberrar skráningar.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Hroði (kk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum