Hoppa yfir valmynd
1. maí 1997 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samræmd próf í 4. og 7. bekk 1997 - maí 1997

Samræmd próf í 4. og 7. bekk 1997


Dreifibréf
Til skólastjóra grunnskóla og skólanefnda



Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmd próf í 4. og 7. bekk grunnskóla verði lögð fyrir í tveimur námsgreinum, íslensku og stærðfræði, haustið 1997, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.

Prófdagar og prófgreinar verða sem hér segir:
Þriðjudagur 14. október, stærðfræði
Miðvikudagur 15. október, íslenska
Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin mun senda leiðbeiningar um framkvæmd og uppbyggingu prófanna til skóla fyrir skólabyrjun í haust.




(Maí 1997)

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum