Hoppa yfir valmynd
1. apríl 1997 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Prófdagar og prófgreinar í 10. bekk grunnskóla vorið 1998 - apríl 1997

Prófdagar og prófgreinar í 10. bekk grunnskóla vorið 1998


Dreifibréf
Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla



Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmd lokapróf verði lögð fyrir í fjórum námsgreinum í 10. bekk vorið 1998, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.

Prófdagar og prófgreinar í 10. bekk grunnskóla vorið 1998 verða sem hér segir:

Miðvikudagur 22. apríl Íslenska
Föstudagur 24. apríl Enska
Mánudagur 27. apríl Stærðfræði
Þriðjudagur 28. apríl Danska
Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála sem sér um framkvæmd samræmdra prófa. Stofnunin sendir síðar nánari upplýsingar um prófkröfur og próffyrirkomulag.


(Apríl 1997)

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum