Hoppa yfir valmynd

Atvinnulíf og þróunarsamvinna

Í stefnu Íslands um alþjóðlega þróunarsamvinnu er lögð áhersla á samstarf við atvinnulífið. Stjórnvöld vilja hvetja einkageirann til að leggja sitt af mörkum til verðmæta- og atvinnuskapandi verkefna í þróunarlöndum og vinna að framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Lausnir, sérþekking og fjárfestingar íslenskra fyrirtækja geta stuðlað að sjálfbærri þróun, aukinni hagsæld og skapað tækifæri fyrir fólk í þróunarlöndum að brjótast úr viðjum fátæktar. Ísland horfir til Þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD, DAC) við framkvæmd verkefna en stofnunin hefur meðal annars það hlutverk að fylgjast með því að aðildarlöndin starfi á grundvelli alþjóðlegra skuldbindinga.

Utanríkisráðuneytið kallar eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum. Verkefni skulu jafnan styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæran hagvöxt og mannsæmandi atvinnutækifæri í þróunarríkjum, auk þess að hafa tengingu við önnur heimsmarkmið sem Ísland leggur áherslu á í þróunarsamvinnu sinni.

  • Hámarksstyrkur er 30 m.kr. á 3ja ára tímabili.  Umsóknarfrestur er til 15. mars 2024.
  • Öllum umsóknum skal skila í tölvupósti á [email protected]

Nánari upplýsingar á vef Heimsmarkmiðasjóðs og á Heimstorgi Íslandsstofu. eða með því að hafa samband við Svanhvíti Aðalsteinsdóttur á [email protected], ef frekari upplýsinga er þörf.

Síðast uppfært: 22.2.2024
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum